Vellíðan og vöxtur

Sagan mín
Ég hafði alla tíð fundið vöntun innra með mér. Tilfinningu um að ég væri ekki nóg nema að þóknast eða bjarga öðrum.
Á vegferð minni við að tengjast sjálfri mér hef ég uppgötvað að áföll í barnæsku eru grunnur alls. Skortur á öryggi og örvun við aðstæður á heimili þar sem foreldrar voru vanvirkir hafa fléttast í líf mitt tengt vali á námi, maka og starfsvettvangi. Litla Anna 6 ára hefur fylgt mér alla tíð með áföllin í bakpokanum sem ég átti óleyst. Meðvirkni var hluti af mér og ég sótti í það sem var kunnulegt.
Árið 2017 voru straumhvörf í lífi mínu, hjónaskilnaður. Þarna án þess að vita það þá var mér gefin dýrmæt gjöf. Ég hafði um margra ára skeið sætt mig við og gert gott úr aðstæðum sem innsæi mitt vissi að voru mér ekki góðar.
Á þessum árum fyrir skilnað lauk ég rykföllnum háskólagráðum, Msc í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum (2016) og diplómu í lýðheilsuvísindum frá HÍ (2017) með áherslu á forvarnir, lýðheilsu, svefn og næringarfræði. og Markþjálfun í Opna Háskólanum (2018).
Þegar þoku létti fann ég leið að sálinni minni með hugleiðslu, RTT dáleiðslu og í áfallastreitumeðferð. Námskeið og ráðgjöf ýmist á netinu eða hér heima. Samhliða líkamlegri uppbyggingu með áherslu á næringu og útivist.
Kærir vinir hafa oft á tíðum borið mig á öxlum sínum í gegnum verkefni síðustu ára.
Andleg og líkamleg rækt getur verið svo margt. Við höfum öll ólíkan bakgrunn en höfum sama tækifæri til að upplifa núið í tenginu við okkur sjálf og framtíð. Við eigum það sameiginlegt að vilja vera séð, heyrð og örugg. Ísfold upplifanir og þjónusta er vettvangur þar sem ég miðla þekkingu minni áfram, bæði sjálf og með fagfólki sem ég treysti.
Í apríl 2022 lauk ég Yoga Nidra kennaranámi hjá Matsyendra Sarawati.
Ísfold upplifun skipuleggur námskeið og upplifanir með því takmarki að bæta líf þeirra sem koma í ferðalag með okkur.
Kærleikskveðja,
Anna Þóra Ísfold